vinnvinn

um okkur

Já, þetta er „um okkur“ síðan.
En þetta snýst í raun og veru allt um þig.

Engu að síður erum við fólk sem hlakkar til að mæta í vinnuna alla daga vikunnar vegna þess að við elskum það sem við gerum. Hvernig er líka annað hægt þegar við á hverjum degi hittum áhugavert og metnaðarfullt fólk, hvort sem það eru umsækjendur eða viðskiptavinir. Og þegar við náum að tengja rétta fólkið við réttu störfin – Vinnvinn.

Orðspor okkar og virðing fyrir viðskipta­vininum er og verður ávallt lykillinn að farsæld okkar og því leggjum við mikla áherslu á trúnað gagnvart einstaklingum og fyrir­tækjum.

Við búum yfir áratuga reynslu í ráðningum og stjórnun. Með því að sameina þekkingu okkar á ólíkum atvinnugreinum, greiningu á hæfni og persónuleika umsækjenda og stjórnenda og samspili við fyrirtækjamenningu finnum við rétta starfsfólkið fyrir viðskiptavini okkar.

okkar metnaður

Árangur og farsæld viðskiptavina og samstarfsaðila er lykilatriði í okkar velgengni og það sem við brennum fyrir. Við erum þekkt fyrir að skapa virði, veita faglega ráðgjöf og sérfræðiþekkingu.

Okkar metnaður er að viðskiptavinir kjósi okkur sem samstarfsaðila, því reynslan sýni að með okkur ná þeir bestum árangri.  

Með skapandi nálgun og starfsgleðina að vopni leitum við sífellt betri leiða að bættum árangri fyrir samstarfsaðila okkar.

Við höfum þrjú grunngildi sem skilgreina hver við erum og hvað við gerum: Ástríða – Árangur – Sköpunargleði.

Ástríða fyrir fólki

  • Starfið okkar og samskipti við umsækjendur og viðskiptavini er það sem við brennum fyrir. Í gegnum áratuga reynslu höfum við byggt upp gríðarlega öflugt tengslanet við stjór­nendur og sérfræðinga í öllum atvinnu­greinum og innan opinberrar stjórnsýslu.
  • Við þekkjum hvað góð frammistaða í starfi skiptir miklu máli fyrir einstaklinginn og fyrirtækið. Ekkert gleður okkur meira en að sjá árangurinn af okkar starfi í sérfræðingum sem blómstra og vaxa í starfi. Rétt pörun hæfni og persónuleika við fyrirtækja­menningu getur skipt sköpum í farsælu ráðningar­sambandi einstaklings og fyrirtækis.
  • Með rétta hugarfarinu og þrautseigju hjálpum við fyrirtækjum að laða til sín rétta starfs­fólkið.

Árangur

  • Árangur annarra er okkar velgengni svo við leggjum gríðarlegan metnað í okkar starf.
  • Við byggjum á áratugalangri reynslu og innsæi.
  • Við brennum fyrir framgangi þeirra sem við eigum í samstarfi við, elskum það sem við gerum, stefnum hátt og leggjum okkur fram á hverjum degi til að hafa jákvæð áhrif á líf fólks.
  • Við höfum veitt ráðgjöf og stýrt ráðningum forstjóra og framkvæmdastjóra í mörgum stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. Þegar kemur að því flókna ferli að velja réttan leiðtoga úr öflugum hópi gríðarlega hæfra umsækjenda skiptir áratuga reynsla, fagmennska, skilvirk mats- og greiningartæki og hæfni okkar sköpum. Árangurinn talar sínu máli.

Sköpunargleði

  • Við erum þekkt fyrir að finna leiðir til að tengja einstaklinga saman með sameiginleg gildi og sýn að leiðarljósi.
  • Við erum skapandi í þeim aðferðum sem við beitum.
  • Við fögnum nýsköpun og leitumst við að gera það sem við gerum vel, betur.

ráðgjafar

Auður Bjarnadóttir

Ráðgjafi og eigandi

Auður er forvitin að eðlisfari og hefur alltaf haft mikinn áhuga á fólki og mannlegri hegðun. Metnaður, árangursdrift og lausnamiðuð hugsun eru eiginleikar sem drífa hana áfram í starfi. Það er því ekki tilviljun að hennar starfsferill hefur verið á sviði ráðninga og ráðgjafar. Auður hefur starfað við ráðningar frá árinu 1994 og aflað sér yfirgripsmikillar reynslu og þekkingar á íslensku atvinnulífi, veitt fjölda fyrirtækja, stofnana og stjórnsýslu ráðgjöf við val á starfsfólki, verkefnastýrt fjölda ráðningarverkefna, skimað þúsundir ferilskráa og komið að ráðningu hundruða einstaklinga í fjölbreytt störf. Auður hefur verið skipuð í fjölmargar ráðgefandi hæfnisnefndir vegna undirbúnings skipunar í opinber embætti hjá ráðuneytum og öðrum opinberum aðilum.

Einnig hefur hún starfað í valnefnd stjórnar Bankasýslu ríkisins vegna tilnefningar einstaklinga til setu í bankaráðum eða stjórnum fjármálafyrirtækja á forræði stofnunarinnar.

Auður Bjarnadóttir

Hilmar Garðar Hjaltason

Ráðgjafi og eigandi

Ef þú þekkir bókina Outliers, The Story of Success, sem Malcolm Gladwell skrifaði þá veistu að til að skara fram úr og slá í gegn verður fyrst að erfiða, læra og þjálfa í 10.000 stundir. Hilmar hefur svo sannarlega gert það og gott betur því hann hefur starfað við ráðningar frá árinu 1998. Hans sérsvið er stjórnendaleit og mönnun stjórna. Hilmar hefur byggt upp gríðarlega gott tengslanet og mikla reynslu á markaði. Hann hefur áunnið sér góð tengsl við íslenska stjórnendur og fagfjárfesta sem eru að leita að stjórnendum.

Hann hefur starfað fyrir fjöldann allan af fyrirtækjum í öllum atvinnugeirum og á opinberum markaði, komið að ráðningum forstjóra og lykilstjórnenda margra strærstu fyrirtækja landsins og ráðningu starfsmanna í stærri sem minni fyrirtækjum. Einnig hefur Hilmar mikla reynslu af vinnu fyrir stór íslensk fyrirtæki á alþjóðamörkuðum.

Hilmar Garðar Hjaltason

Jensína Kristín Böðvarsdóttir

Framkvæmdastjóri og eigandi

Jensína hóf störf við ráðningar árið 1997 þegar hún kom að stofnun Ráðningar­þjónustu Gallup, síðar Capacent, þar sem Auður og Hilmar störfuðu um árabil. Jensína hefur verið viðloðandi stjórnun og starfs­mannamál – þar á meðal ráðningar – allar götur síðan, síðast sem Associate Partner hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Valcon. Jensína var framkvæmda­stjóri Global Strategic Planning og HR hjá Alvogen frá 2015–2018, framkvæmdastjóri þróunar og mannauðs hjá Landsbankanum 2010–2015 og forstöðumaður sölu á einstaklingssviði Símans 2007–2010.

Jensína hefur mikla reynslu af stefnumótun og innleiðingu stefnu og þekkir mjög vel hvað vel mönnuð teymi skipta miklu máli í fram­gangi fyrirtækja. Hún hefur unnið með og stýrt teymum stjórnenda í Skandinavíu, Asíu, Norður-Ameríku og Austur-Evrópu og tekið þátt í mönnun sérfræðinga og lykilstjórnenda viðsvegar um heiminn. Hún hefur mjög sterk tengsl við atvinnulífið á Íslandi og er í stjórn Haga og Íslandssjóða auk þess að vera formaður tilnefningarnefndar Símans og VÍS.

Jensína Kristín Böðvarsdóttir